Fotbolti.net
17.12.22 - 19:10
Ívan Guðjón Baldursson

Æfingaleikur: Ný andlit er Keflavík lagði Breiðablik

Gunnlaugur Fannar lék með Keflavík.

Gunnlaugur Fannar lék með Keflavík.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Keflavík 2 - 1 Breiðablik
1-0 Jóhann Þór Arnarsson
2-0 Frans Elvarsson
2-1 Arnór Sveinn Aðalsteinsson

Keflavík spilaði við Íslandsmeistara Breiðabliks í æfingaleik í dag og hafði betur eftir hörku leik.

Jóhann Þór Arnarsson og Frans Elvarsson komu Keflavík í tveggja marka forystu áður en Arnór Sveinn Aðalsteinsson, sem hefur leikið með KR síðan hann skipti úr Breiðablik 2017, minnkaði muninn fyrir Blika. 

Það voru ný andlit í báðum liðum þar sem Gunnlaugur Fannar Guðmundsson, sem hefur verið hjá Kórdrengjum að undanförnu en á einnig leiki að baki fyrir Víking R. og Hauka, lék með Keflavík í dag.

Þá var hinn 17 ára gamli Ágúst Orri Þorsteinsson í liði Blika en hann er talinn vera gífurlega mikið efni. Ágúst Orri er kantmaður sem hefur leikið með unglingaliði Malmö og á sex unglingalandsleiki að baki.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.