Pólskir fjölmiðlar eru að orða ýmsa leikmenn við Legja Varsjá sem er í fjórða sæti pólsku deildarinnar eftir að fyrri hluta tímabilsins er lokið.
Gísli Gottskálk Þórðarson, miðjumaður Víkings R., er einn þeirra sem er orðaður við félagaskipti til Legia.
Gísli er fjölhæfur leikmaður sem getur spilað á miðjunni, sem varnartengiliður og sem miðvörður. Hann hefur hrifið marga innan fótboltaheimsins með frammistöðum sínum í heimaleikjum Víkings í Sambandsdeildinni.
Hann er 20 ára gamall og með 14 leiki að baki fyrir sterk U19 og U21 landslið Íslands.
Gísli, sem er uppalinn hjá Breiðabliki, reyndi fyrir sér með Bologna á Ítalíu fyrir nokkrum árum en tókst ekki að hrífa nógu mikið í unglingastarfi félagsins svo hann hélt aftur til Íslands og samdi við Víkinga.
Talið er að Víkingar geti fengið væna summu fyrir Gísla, eða um 400,000 evrur. Það samsvarar tæpum 60 milljónum íslenskra króna.
Athugasemdir