17.12.24 - 14:32
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Þau koma til greina sem fótboltafólk ársins - Tvö spila á Íslandi

Glódís Perla Viggósdóttir

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Albert Guðmundsson.

Mynd: Getty Images

Glódís Perla Viggósdóttir

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KSÍ leitar til ríflega 500 einstaklinga sem tengst hafa fótboltanum á ýmsan átt til að aðstoða við val á fótboltamanni og fótboltakonu ársins. Úrslitin verða tilkynnt síðar í desember.
Hver og einn sem tekur þátt í valinu raðar þremur leikmönnum af hvoru kyni upp í 1.-3. sæti. 1. sæti gefur fimm stig, 2. sætið gefur þrjú stig og 3. sætið eitt stig í kjöfinu.
KSÍ hefur sett saman lista með 10 leikmönnum að hvoru kyni sem skarað hafa fram úr á árinu sem er að líða. Þeir sem kjósa geta þó bætt nafni eða nöfnum á sinn lista.
Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Íslandsmeistara Breiðabliks, er eini leikmaðurinn sem tilnefndur er sem ekki spilaði landsleik á árinu. Sandra María Jessen, sem varð markahæst í Bestu deildinni, er hinn leikmaðurinn á listanum sem spilar á Íslandi.

Leikmaður ársins - Konur
Diljá Ýr Zomers - OH Leuven
Glódís Perla Viggósdóttir - Bayern München
Guðrún Arnardóttir - Rosengård
Emilía Kiær Ásgeirsdóttir - Nordsjælland
Hildur Antonsdóttir - Madrid CFF
Hlín Eiríksdóttir - Kristianstad
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir - Bayer Leverkusen
Sandra María Jessen - Þór/KA
Sveindís Jane Jónsdóttir - Wolfsburg
Sædís Rún Heiðarsdóttir - Vålerenga
Leikmaður ársins - Karlar
Albert Guðmundsson - Fiorentina
Andri Lucas Guðjohnsen - Gent
Hákon Arnar Haraldsson - Lille
Hákon Rafn Valdimarsson - Brentford
Höskuldur Gunnlaugsson - Breiðablik
Jóhann Berg Guðmundsson - Al-Orobah
Jón Dagur Þorsteinsson - Hertha Berlin
Orri Steinn Óskarsson - Real Sociedad
Stefán Teitur Þórðarson - Preston NE
Sverrir Ingi Ingason - Panathinaikos