Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   mán 18. janúar 2021 16:00
Enski boltinn
Af hverju getur Liverpool ekki skorað?
Jordan Henderson hefur spilað í hjarta varnarinnar í síðustu tveimur leikjum í ensku úrvalsdeildinni.
Jordan Henderson hefur spilað í hjarta varnarinnar í síðustu tveimur leikjum í ensku úrvalsdeildinni.
Mynd: Getty Images
Liverpool hefur ekki skorað í þremur leikjum í röð í ensku úrvalsdeildinni og lítið gengur upp í sóknarleik liðsins þessa dagana. Hrafn Kristjánsson og Rikki G ræddu um þetta í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" á Fótbolta.net í dag en þar var skoðað af hverju Liverpool skorar ekki lengur mörk.

Joe Gomez og Virgil van Dijk meiddust illa á hné fyrir áramót og í síðustu tveimur leikjum hafa miðjumennirnir Jordan Henderson og Fabinho spilað í hjarta varnarinnar hjá liðinu.

„Það er ódýr matreiðsla að þetta liggi bara hjá sóknarmönnunum. Leikstíll Liverpool hefur liðið ótrúlega mikið fyrir meiðslin hjá liðinu. Meiðsli eru hluti af boltanum en þetta er ástæða þó að þetta sé ekki endilega afsökun," sagði Hrafn Kristjánsson.

„Þegar vantar menn í vörnina þá vantar ekki bara þá heldur er verið að færa tvo úr öðrum stöðum til að vera þolanlegir í vörninni. Þú ert að missa 3-4 leikmenn úr leikfræðinni sem þú ert að vinna með."

„Það er erfiðara fyrir Liverpool að dominera leiki þegar þú þarft að spila með varnarlínuna aftar. Varnarmennirnir hjá Liverpool eru ekki rakettur en þeir elskuðu að þjappa andstæðingnum upp að eigin marki og svo voru vinnuhestarnir á miðjunni að tæta menn í sig á miðjum vellinum."

„Þegar þeir spiluðu hærra uppi voru þeir 3-4 sekúndum fljótari að sækja. Þá komu krossarnir inn í boxið án þess að það væri pakkað þar. Þessar fyrirgjafir eru alls ekki að virka."


Í þættinum var einnig rætt um mikilvægi Virgil van Dijk í sóknarlínu Liverpool auk þess sem var rætt um sóknarmenn Liverpool sem hafa ekki verið líkir sjálfum sér í síðustu leikjum.

Það eru White Fox, Viking gylltur (léttöl) og Domino's sem bjóða upp á þáttinn. Hér að neðan má hlusta á þáttinn.
Enski boltinn - Liverpool getur ekki skorað
Athugasemdir
banner
banner