Ben Chilwell, leikmaður Chelsea á Englandi, segir frá því í viðtali við heimasíðu ensku úrvalsdeildarinnar, að hann og liðsfélagi hans, Reece James, hafi teflt í fleiri klukkutíma í flugi frá Rússlandi.
Chilwell gekk til liðs við Chelsea frá Leicester í ágúst en hann hefur verið einn besti vinstri bakvörður deildarinnar síðustu ár.
Kórónaveiran hefur haft mikil áhrif á daglegt líf fólks um allan heim og hefur því Chilwell fundið sér nýtt áhugamál. Hann er byrjaður að tefla til þess að örva heilann.
„Hlutirnir eru erfiðir í augnablikinu. Ég er svo heppinn að vera í þannig vinnu að ég get mætt á svæðið, hitt vini mína og gert það sem ég elska að gera en það er fullt af fólki sem er ekki í þeirri aðstöðu og þurfa að vera heima," sagði Chilwell.
„Ég hef fundið mér ýmislegt að gera eftir æfingar. Ég hef fundið mér nýjar áskoranir til að örva heilann og halda mér gangandi á þessum tímum. Ég og Reece James teflum á netinu og gerum það reglulega. Við skiptumst á að vinna en það var einn leikur sem var sérstaklega í minninu og það var í fluginu á leið frá Rússlandi eftir Meistaradeildarleik. Við vorum í sama leiknum allt flugið!" sagði hann ennfremur.
Athugasemdir