Wilfried Bony, fyrrum framherji Manchester City og Swansea, segist vera tilbúinn að spila hvar sem er í heiminum en hann er í leit að nýju félagi.
Hinn 32 ára gamli Bony æfir þessa dagana með Newport County í ensku D-deildinni til að halda sér í formi.
Bony lék undir stjórn Heimis Hallgrímssonar hjá Al Arabi í Katar árið 2019 en á síðasta ári var hann á mála hjá Al-Ittihad í Sádi-Arabíu áður en hann rifti samningi í nóvember.

„Umboðsmenn mínir og starfsfólk eru að tala við félög í Tyrklandi, Kína, Suður-Kóreu og Rússlandi," sagði Bony.
„Ég læt þá sjá um það. Ég einbeiti mér að því að æfa, komast í form og vera klár þegar augnablikið rennur upp."
Athugasemdir