Þrettán leikmenn gætu yfirgefið Man Utd - Liverpool á eftir leikmanni Betis
Davíð Helgi: Búinn að halda þessu fagni leyndu
Haraldur Freyr: Of langur tími til þess að 'suffera'
Enginn feluleikur hjá Hadda - „Ef þú er ekki tilbúinn að leggja þig fram þá spilarðu ekki í KA“
Guðni Eiríks: Það er ekki tilfinningin sem ég fæ
Rúnar Páll: Við erum helvítis klaufar
Fyrsti leikurinn með Þór/KA síðan 2021 - „Þokkalega sanngjarnt"
Gunnar Heiðar: Við erum allir í 'revenge mode'
Alli Jói: Hélt að vorbragur væri dautt hugtak í íslenskum fótbolta
Rændar vítaspyrnu - „Bara frábær markvarsla hjá útileikmanni Vals“
Brynjar Björn: Við fáum það í bakið, ekkert flóknara en það
„Þetta er náttúrulega gífurlega ungt lið“
„Hlýtur að vera ótrúlega erfitt að spá í þessa deild“
Bjarki Baldvins: Held að samkvæmt ströngustu reglum megum við ekki vera þjálfarar
Damir: Vonandi springur hann út hjá okkur
Ray virðir stigið: Vona að við getum bætt við einum reynslumeiri manni
Badu svekktur: Væri gott að fá góðan liðsstyrk
Anton Ingi: Töpuðum í raun fyrir sjálfum okkur
Stefán Þór: Ofboðslega skrýtinn leikur
Jóhann Birnir ekki rólegur fyrr en á 92. mínútu
Nenad: Svo í seinni hálfleik var það köld sturta
   fim 18. janúar 2024 12:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Arnór Gauti: Vil sanna mig á stærra sviði og reyna að komast út
Dóri Árna hringdi í mig og það þurfti ekki mikið til, hann hefur virkilega skemmtilega sýn á fótbolta og seldi mér þetta
Dóri Árna hringdi í mig og það þurfti ekki mikið til, hann hefur virkilega skemmtilega sýn á fótbolta og seldi mér þetta
Mynd: Breiðablik
Markmiðið er að berjast um alla titla, gera aftur vel í Evrópu og síðan er endamarkmiðið að komast aftur út
Markmiðið er að berjast um alla titla, gera aftur vel í Evrópu og síðan er endamarkmiðið að komast aftur út
Mynd: Breiðablik
Aðstoðarþjálfarinn er í njósnarahlutverki hjá félaginu og er hann ástæðan fyrir því að ég fór út að æfa með þeim.
Aðstoðarþjálfarinn er í njósnarahlutverki hjá félaginu og er hann ástæðan fyrir því að ég fór út að æfa með þeim.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
 Það er erfitt að fara, góður klúbbur, ég þekki alla, en mér fannst tímabært að taka næsta skref.
Það er erfitt að fara, góður klúbbur, ég þekki alla, en mér fannst tímabært að taka næsta skref.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er virkilega spenntur fyrir því að vera orðinn leikmaður Breiðabliks og hlakka til að byrja. Dóri Árna hringdi í mig og það þurfti ekki mikið til, hann hefur virkilega skemmtilega sýn á fótbolta og seldi mér þetta," sagði Arnór Gauti Jónsson sem var á laugardag kynntur sem nýr leikmaður Breiðabliks.

Hann er 21 árs djúpur miðjumaður sem uppalinn er hjá Aftureldingu en lék síðustu þrjú tímabilin með Fylki.

„Það var rétt áramót sem ég heyrði fyrst í Dóra, átti virkilega gott samtal við hann. Þá fór þetta í gang. Síðan eigum við aftur símtal og tölum um hlutina og eftir það gerðist þetta virkilega hratt og ákvörðun tekin."

Þjálfararnir hjá Preussen Münster ekki á sama máli
Arnór Gauti æfði með Preussen Münster í Þýskalandi í desember. Liðið er í þýsku C-deildinni.

„Ég æfði með aðalliðinu í tíu daga, það var virkilega gaman, krefjandi og fer klárlega í reynslubankann."

„Staðan þar er að aðstoðarþjálfarinn og þjálfarinn eru kannski ekkert alveg á sama máli. Ég get ekki sagt að ég hafi verið nálægt því að skrifa undir þar. Aðstoðarþjálfarinn er í njósnarahlutverki hjá félaginu og er hann ástæðan fyrir því að ég fór út að æfa með þeim. Ég náði að heilla hann mjög vel, og þótt ég segi sjálfur frá þá fannst mér ég standa mig mjög vel í krefjandi umhverfi. En þjálfarinn er meiri gamli skóli, eldri maður og hugsar meira um að sækja einhvern úr deildinni fyrir ofan frekar en einhvern Íslending sem hefur ekki sannað sig."

„Ég tek þessu ekki sem neikvæðum hlut, það var virkilega gaman að fara út og virkilega flottur klúbbur. Þetta var allt á öðru 'leveli' en hér heima. Það var gaman að upplifa það og bera sig saman við leikmenn úti."


Allt heillaði
Hvað heillar við Breiðablik?

„Það er mjög margt. Þjálfararnir Dóri og Eyjó er virkilega góð blanda og flottir karakterar. Dóri er með skemmtilega sýn á fótbolta og svo er Eyjó ÍR-ingur að upplagi. Gamli, pabbi, er úr ÍR þannig hann og Eyjó þekkjast eitthvað. Þeir eru virkilega spennandi þjálfarar og seldu mér að koma í Breiðablik. Umgjörðin er virkilega flott, aðstaðan góð og leikmannahópurinn er virkilega góður. Þeir hafa sýnt það á undanförnum árum að þeir eru virkilega góðir í fótbolta. Þeir voru fyrsta liðið til að komast í riðlakeppni í Evrópu og eru að berjast um titla á hverju einasta ári. Markmiðið mitt er að taka næsta skref og sýna að ég eigi heima þar. Það var einhvern veginn allt sem heillaði."

Mosfellinganýlenda
Mosfellingum hefur gengið vel hjá Breiðabliki. Leikmenn úr Mosfellsbæ eru í lykilhlutverki í liðinu núna og þeir Róbert Orri Þorkelsson og Ísak Snær Þorvaldsson hafa verið seldir frá félaginu.

„Það mætti segja að það væri Mosfellinganýlenda þarna. Eigum við ekki bara að framlengja þeirri sögu, endurtaka hana? Markmiðið er að berjast um alla titla, gera aftur vel í Evrópu og síðan er endamarkmiðið að komast aftur út."

Arnór Gauti ræddi við Jason Daða og Eyþór Wöhler áður en hann tók ákvörðun um að fara í Blika.

Olgeir á skilið meira kredit
Er erfitt að yfirgefa Fylki?

„Það er það alveg, ég hef ekkert slæmt um Fylki að segja, góðir þjálfarar, Rúnar náttúrulega búinn að sanna sig á Íslandi og líka í Evrópukeppni. Olgeir er virkilega flottur þjálfari líka með mjög góða sýn á fótbolta. Olgeir má alveg eiga það að ég held að hann sé að 'challenge-a' Rúnar á góðan hátt, það er gott fyrir Rúnar að hafa hann með sér. Ég held að Olgeir eigi meira kredit skilið fyrir það sem er að gerast í Fylki."

„Maður er mjög tengdur öllum leikmönnum í Fylki, þeir hafa kennt mér margt og ég tek mikið frá þeim í veskið með mér. Það er erfitt að fara, góður klúbbur, ég þekki alla, en mér fannst tímabært að taka næsta skref. Ég vil sanna að ég geti spilað á aðeins stærra sviði og vil reyna koma mér erlendis. Ef maður stendur sig vel í Breiðabliki eru talsverðar líkur á því að maður komist út,"
sagði Gauti.

U21 klárlega faktor
Hann hefur verið í kringum U21 landsliðið á þessu ári og var í leikmannahópunum fyrri hluta árs. Er hann að horfa í að komast nær því liði með því að fara í Breiðablik?

„Ef maður spilar í Breiðabliki þá er maður að gera vel, standa sig vel, að öllum líkindum að bæta sig í fótbolta og að spila á góðu 'leveli'. U21 landsliðið er alveg klárlega faktor í ákvörðuninni, ég var ekki valinn í síðustu hópa en hef verið þar og er vonandi á blaði þarna einhvers staðar. Það er bara undir mér komið að sýna og sanna núna á undirbúningstímabilinu að ég eigi heima þar. Ég vil að sjálfsögðu vera þar, það er engin spurning," sagði kappinn að lokum.
Slapp
banner
banner
banner