Ilkay Gundogan, leikmaður Manchester City, mun leika með liðinu gegn Arsenal í ensku deildinni um næstu helgi.
Þetta segir Pep Guardiola, stjóri City, en Gundogan meiddist gegn Tottenham um síðustu helgi og missti af leik við Everton í gær.
Gundogan hefur verið einn heitasti leikmaður bláliða síðustu vikur og ætti hann að ná leikjum gegn Arsenal og svo Borussia Monchengladbach í Meistaradeildinni.
„Honum líður mun, mun betur. Það er ekki stórmál en til að sleppa við áhættu þá gáfum við honum nokkra uka daga til að jafna sig," sagði Guardiola.
„Hann ætti að vera klár fyrir leikina gegn Arsenal og Gladbach. Gundo er magnaður. Við höfum rætt það. Ef þú vilt vinna titla þá þarftu alla þína menn."
Athugasemdir