Fotbolti.net
18.02.26 - 09:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Juan Guardia í Völsung (Staðfest) - „Hilmir snýr heim"

Fagnað haustið 2024 þegar Völsungur nálgaðist Lengjudeildina.

Fagnað haustið 2024 þegar Völsungur nálgaðist Lengjudeildina.

Canon

Mynd: 640.is - Hafþór Hreiðarsson

Lengjudeildin
Juan Guardia skrifaði í gær undir samning við Völsung og er hann að mæta aftur á Húsavík eftir eins árs veru hjá Þór.

Hann er uppalinn hjá Atletico Madrid og kom til Völsungs fyrir tímabilið 2023. Hann hjálpaði Völsungi að komast upp úr 2. deild 2024 og skipti svo í Þór.

Spænski varnarmaðurinn, sem bæði getur spilað sem bakvörður og miðvörður, skoraði þrjú mörk í 16 leikjum þegar Þór vann Lengjudeildina.
Völsungur fær einn frá grönnunum og annar færist nær
TENGT EFNI

Völsungur fær einn frá grönnunum og annar færist nær

Hann er fæddur árið 2002 og eru Völsungar ánægðir með að endurheimta sinn mann.

Tilkynning Völsungs
HILMIR SNÝR HEIM!!!

Juan Guardia hefur gengið til liðs við Völsung á ný. Hann er okkur Völusungum vel kunnugur en hann lék með okkur tímabilin 2023 og 2024. Hann var lykilmaður þegar liðið fór upp um deild 2024. Í fyrra lék hann með núverandi Kjarnafæðismeisturum í Þór og kom þeim upp í Bestu deildina. Juan kemur til Húsavíkur í lok mánaðar og erum við spennt að fá hann aftur á Húsavík.

Juan Guardia í Völsung (Staðfest) - „Hilmir snýr heim"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.