Fotbolti.net
18.02.26 - 16:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Steven Caulker mættur í tyrknesku úrvalsdeildina (Staðfest)

Steven Caulker mættur í tyrknesku úrvalsdeildina (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Steven Caulker greinir frá því á samfélagsmiðlum sínum í dg að hann er orðinn aðstoðarþjálfari Konyaspor í tyrknesku úrvalsdeildinni.

„Ég hef tekið mér tíma eftir að ég yfirgaf Ísland til að finna það sem mér finnst vera rétta tækifærið. Það hefur ekki alltaf auðvelt að halda þolinmæði, sérstaklega þegar ég hef sóst eftir störfum en verið hafnað, en í dag get ég sagt að það hefur veirð biðinnar virði," skrifar Caulker.

Framundan hjá Konyaspor er leikur gegn stórliðinu Galatasaray um helgina.
Fjárhagslegar ástæður fyrir riftuninni - „Það er bara pakki"
TENGT EFNI

Fjárhagslegar ástæður fyrir riftuninni - „Það er bara pakki"

Caulker kom til Íslands í sumar og kom inn sem spilandi aðstoðarþjálfari. Hann gerði eins og hálfs árs samning en þeim samningi var rift í vetur þar sem Caulke vildi ekki halda áfram að spila.

Hann er fyrrum leikmaður m.a. Tottenham og Liverpool og hjálpaði Stjörnunni að landa Evrópusæti á síðasta tímabili.

Ilhan Palut er þjálfari Konyaspor og liðið situr í 11. sæti deildarinnar. Caulker lék í Tyrklandi á árunum 2019-22 og aftur tímabilið 2024/25 áður en hann samdi við Stjörnuna.

Tveir íslenskir landsliðsmenn spila í Tyrklandi, Logi Tómasson er hjá Samsunspor og Andri Fannar Baldursson er hjá Kasimpasa.
Steven Caulker mættur í tyrknesku úrvalsdeildina (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.