Sverrir Páll Hjaltested hefur skrifað undir tveggja ára samning við FH. Framherjinn kemur til félagsins frá ÍBV þar sem hann hefur spilað síðustu ár.
Sverrir er 25 ára og átti nokkuð gott tímabil með ÍBV í fyrra. Hann skoraði sex mörk í Bestu deildinni og lagði upp eitt í fjórtán byrjunarliðsleikjum. Meiðsli settu sitt strik á undirbúningstímabilið, hann virtist ekki í stóru hlutverki í byrjun móts en það stækkaði til muna þegar Omar Sowe sleit krossband nokkuð snemma móts.
Sverrir kom til ÍBV frá Val fyrir tímabilið 2023 og var því að klára sitt þriðja tímabil í Eyjum. Hann skoraði sex deildarmörk á öllum tímabilunum í Eyjum.

„Sverrir Páll er að mörgu leyti svipaður prófíll og Sigurður Bjartur var þegar við fengum hann til liðs við okkur. Miklir hæfileikar, góður að koma sér í færi, aggresívur, með gott hugarfar og erfiður að eiga við. Við teljum að það búi enn meira í honum en það sem hann hefur sýnt undanfarin ár og það verður virkilega spennandi að fylgjast með honum hjá okkur að minnsta kosti næstu tvö árin,” sagði Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður fótboltamála hjá FH, við FH Media.
Davíð vísar í Sigurð Bjart sem FH seldi til Spánar í síðasta tímabil. Hann var fenginn frá KR fyrir tímabilið 2024 og blómstraði seinni hluta síðasta tímabils.
Athugasemdir