Man Utd lækkar ekki verðmiða Rashford - Liverpool ræðir við Szoboszlai - Toney gæti snúið aftur til Englands
banner
   mið 18. febrúar 2026 10:31
Elvar Geir Magnússon
Sverrir sagður á leið í FH
Sverri Páll Hjaltested.
Sverri Páll Hjaltested.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sóknarmaðurinn Sverrir Páll Hjaltested mun ganga í raðir FH í dag en þetta segir Kristján Óli Sigurðsson í Þungavigtinni á X samfélagsmiðlinum.

Sverrir er án félags eftir að hafa yfirgefið ÍBV að síðasta tímabili loknu. Hann skoraði sex mörk og lagði upp eitt í 14 byrjunarliðsleikjum í Bestu deildinni í fyrra.

Hann er 25 ára og hefur spilað með Val, Kórdrengjum, Völsungi og ÍBV hér á landi en er uppalinn hjá Víkingi. Hann var á mála hjá Tromsö í Noregi á árunum 2016-18.

Sverrir var einnig orðaður við Fram og Þrótt en virðist á leið í Kaplakrika.


Athugasemdir
banner
banner