Gylfi Þór Sigurðsson er í annað sinn í landsliðshópnum hjá Arnari Gunnlaugssyni, og í fyrsta sinn í alþjóðlegum landsleikjaglugga*. Arnar fékk talsverða gagnrýni í fyrra fyrir að velja Gylfa ekki í landsliðshópinn í undankeppni HM þegar Gylfi var að spila vel með Víkingi.
Arnar valdi ekki Gylfa á sama tíma í fyrra þar sem Gylfi var á undirbúningstímabili með Víkingi. Þá spilaði Ísland leiki gegn Kósovó í Þjóðadeildinni en nú eru framundan vináttuleikir gegn Kanada og Haítí í Kanada. Það skal tekið fram að undirbúningstímabil Víkings í fyrra var öðruvísi en í ár þar sem liðið var að fara af stað eftir langt tímabil í Evrópu.
Gylfi var í landsliðshópnum í síðasta mánuði sem spilaði vináttuleik gegn Mexíkó, en í þeim hópi voru einungis tveir leikmenn sem ekki voru skráðir í íslenskt félag.
Frétt frá 12. mars í fyrra:

Landsliðsþjálfarinn var spurður út í Gylfa á fréttamannafundi í dag.
„Hann eiginlega heillaði mig frá fyrsta símtali sem ég tók við hann (fyrir Mexíkó verkefnið). Hann var spenntur eins og krakki í leikfangabúð að vera með í Mexíkó. Fyrir fram, miðað við hans feril, var það kannski ekki mest spennandi verkefni í heimi, en hann var tilbúinn. Í Mexíkó var hann gjörsamlega frábær, innan vallar sem utan. Mér fannst hann eiga skilið að vera í þessum hóp."
„Ég held að Gylfi, og vonandi Jói og Aron, þessir síðustu úr gömlu kynslóðinni, geti hjálpað okkur í haust (í Þjóðadeildinni) að því gefnu að þeir verði í góðu standi og eru að spila reglulega. Ég er alveg sannfærður um það," sagði Arnar.
Gylfi er 36 ára miðjumaður sem hefur spilað 84 landsleiki og er markahæsti leikmaður í sögu landsliðsins með 27 mörk skoruð. Hann spilaði allar 90 mínúturnar gegn Mexíkó og bar fyrirliðabandið í síðasta mánuði. Arnar ræddi nánar um Gylfa í viðtali sem nálgast má í spilaranum hér að neðan.
*Í alþjóðlegum landsleikjaglugga er hægt að velja leikmenn úr öllum deildum heims, en það hefur ekki verið hægt þegar Ísland hefur spilað vináttuleiki í janúar eða febrúar síðustu ár.
Athugasemdir