Belgi orðaður við Man Utd - Óskalisti Alonso ef hann tekur við Liverpool - Juventus veitir Arsenal samkeppni um Goretzka
   mið 18. mars 2026 19:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Rooney: Ég tek þetta til baka
Casemiro og Bruno Fernandes.
Casemiro og Bruno Fernandes.
Mynd: EPA
Wayne Rooney.
Wayne Rooney.
Mynd: EPA
Eftir sigur Manchester United á Aston Villa á dögunum sungu stuðningsmenn Manchester United: „Eitt ár í viðbót, eitt ár í viðbót."

Voru þeir þá að syngja til Casemiro sem hefur verið stórkostlegur á miðsvæðinu hjá United á þessu tímabili.

Þessi 34 ára Brassi tilkynnti í janúar að hann myndi yfirgefa félagið þegar samningur hans, upp á 350 þúsund pund á viku, rennur út í sumar.

Þrátt fyrir öfluga frammistöðu hans á tímabilinu ákvað United að félagið myndi ekki bjóða honum nýjan samning og hann mun því yfirgefa það á frjálsri sölu.

Wayne Rooney, ein mesta goðsögn í sögu Man Utd, væri til í að sjá félagið taka U-beygju með þessa ákvörðun.

„Ég myndi endurhugsa þessa ákvörðun núna," sagði Rooney.

„Ég sagði snemma eftir að hann kom til Man Utd að hann hefði ekki fótana í þetta lengur. Ég held að margir hafi hugsað það sama, en ég tek þetta til baka. Hann er búinn að vera algjörlega stórkostlegur."

BBC segir þó engar áætlanir hjá Manchester United um að endurskoða ákvörðunina.
Athugasemdir
banner