Ætlar að fá Kvaratskhelia til Real Madrid - Ngumoha ekki til sölu - Mourinho vill Bernardo Silva
banner
   mán 18. maí 2026 18:00
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Arsenal og Burnley: Gyökeres bekkjaður
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Arsenal tekur á móti föllnu liði Burnley í gríðarlega mikilvægum leik fyrir Mikel Arteta og lærlinga hans sem eru í harðri titilbaráttu við Manchester City.

Arteta gerir þrjár breytingar á byrjunarliðinu sem vann naumlega gegn West Ham í síðustu umferð. Kai Havertz kemur inn í fremstu víglínu fyrir Viktor Gyökeres og tekur Martin Ödegaard sér stöðu á miðjunni í stað Myles Lewis-Skelly á meðan Cristhian Mosquera fer í hægri bakvarðarstöðuna í stað Ben White sem er að glíma við meiðsli.

Gyökeres er markahæsti leikmaður Arsenal á tímabilinu en liðið hefur meiri þörf á honum í öðrum tegundum af leikjum. Havertz er betri í litlu plássi á meðan helstu styrkleikar Gyökeres eru bersýnilegir þegar meira er um pláss á vellinum og leikurinn fer ekki aðallega fram á vallarhelmingi andstæðinganna.

Arsenal mætir til leiks með sóknarsinnað lið þar sem Ebereechi Eze og Ödegaard eru á miðjunni ásamt Declan Rice. Arteta vill sjá sigur í kvöld og helst stórsigur til þess að bæta markatöluna sem gæti ráðið úrslitum í titilbaráttunni.

Michael Jackson, bráðabirgðaþjálfari Burnley, mætir til leiks með sama byrjunarlið og náði 2-2 jafntefli gegn Aston Villa um síðustu helgi. Burnley sýndi frábæra frammistöðu gegn sterkum andstæðingum í þeim leik.

Arsenal: Raya, Mosquera, Saliba, Gabriel, Calafiori, Rice, Odegaard, Eze, Saka, Trossard, Havertz.
Varamenn: Kepa, Hincapie, Jesus, Martinelli, Gyokeres, Madueke, Zubimendi, Lewis-Skelly, Dowman.

Burnley: Weiss, Walker, Esteve, Tuanzebe, Pires, Ugochukwu, Florentino, Anthony, Tchaouna, Hannibal, Flemming.
Varamenn: Dubravka, Hartman, Worrall, Bruun Larsen, Edwards, Humphreys, Ward-Prowse, Amdouni, Laurent.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner
banner