Marcel Zapytowski var ekki í leikmannahópi ÍBV þegar Víkingur kom í heimsókn til Vestmannaeyja í gær. Pólski markvörðurinn fékk járnflís í augað þegar hann var að störfum hjá Steina og Olla. Þetta kom fram í Innkastinu þar sem umferðin var gerð upp.
Marcel var aðalmarkvörður ÍBV á síðasta tímabili, hann lék mjög vel en hefur verið til vara fyrir Ara í Haraldsstovu Petersen sem hefur staðið vaktina í síðustu þremur leikjum. En það var enginn varamarkvörður á bekk ÍBV í gær.

Lestu um leikinn: ÍBV 0 - 2 Víkingur R.
„Hann er meiddur, fór í aðgerð á auga, ekkert alvarlegt, en við gátum ekki notað hann í þessum leikjum. Hann verður til taks fyrir næstu leiki," sagði Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV, eftir leikinn í gær.
Ari gerði mistök í seinna marki Víkings í gær þegar hann sendi boltann beint á Gylfa Þór Sigurðsson sem refsaði fyrir mistökin með frábæru skoti fyrir aftan miðju. Fyrra markið var skallamark frá Óskari Borgþórssyni.