Fotbolti.net
18.06.05 - 09:04
Arnar Jóhannsson

Candela til Udinese (Staðfest)

Candela til Udinese (Staðfest)
Canon
Franski bakvörðurinn Vincent Candela hefur ákveðið að ganga til liðs við ítalska félagið Udinese frá Bolton. Hann gekk til liðs við Bolton frá Roma í janúar á samningi sem gilti út nýafstaðina leiktíð og hafði Sam Allardyce stjóri Bolton vonast til að halda þessum leikreynda Frakka í sínum herbúðum.
Þessi ákvörðun Candela er vonbrigði fyrir Bolton en félagið tekur þátt í Evrópukeppni í fyrsta sinn á næsta tímabili. Udinese tekur hins vegar þátt í Meistaradeild Evrópu og reið það baggamuninn í ákvörðun Frakkans.

"Ég er ánægður með að fá tækifæri til að spila í Meistaradeildinni og ég mun ekki valda félaginu vonbrigðum."

Candela hlakkar til að spila með Udinese og vonast til að félagið haldi sínum skærustu stjörnum svo sem Chilemanninum David Pizzaro sem mun vera eftirsóttur hjá stærstu klúbbunum á Ítalíu. "Udinese er stórt félag og ég vona að Pizzaro verði áfram hjá félaginu þar sem hann er mikill sigurvegari."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.