Fotbolti.net
18.06.14 - 20:33
Arnar Daði Arnarsson

Eiður Aron: Vonandi eitthvað bikarævintýri

Auglýsing
Eiður Aron í leik með ÍBV í sumar.

Eiður Aron í leik með ÍBV í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Borgun
,,Þrjú mörk og við héldum hreinu skóp þennan sigur, það var ekki flóknara en það,\" sagði Eiður Aron Sigurbjörnsson fyrirliði ÍBV eftir 3-0 sigur á Val í Borgunarbikarnum í kvöld.
,,Við vorum að skapa okkur helling í fyrri hálfleik og líka í seinni en við kláruðum færin í þeim seinni. Við ræddum í hálfleik um að halda áfram. Við stjórnuðum þessum leik í 92 mínútur fannst mér. Mér fannst aldrei nein hætta á markinu okkar. Ef við hefðu nýtt færin í fyrri hálfleik hefði þetta farið 5-0.\"

,,Þetta er vonandi eitthvað bikarævintýri hérna og við þurfum að taka það með í deildina. Þessi botnbarátta er orðin helvíti þreytt. Við vonum að það fari að breytast. Maður er orðinn þunglyndur þegar maður horfir á tölfuna stundum en vonandi tökum við þetta inn í deildina og förum að hala inn stigum.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.