Sergio Ramos er á förum frá Real Madrid en hann verður samningslaus í lok mánaðar.
Ramos hefur spilað með Real undanfarin 16 tímabil en hann kom til félagsins frá Sevilla.
Nú er búið að staðfesta brottför Ramos stuttu eftir að Zinedine Zidane steig til hliðar sem stjóri félagsins.
Zidane kvaddi Ramos með færslu á Instagram í gær þar sem hann kallaði Spánverjann á meðal annars goðsögn.
„Goðsögn. Það var ánægjulegt og mikill heiður að bæði spila með þér og þjálfa þig," sagði Zidane.
„Þú ert frábær fyrirliði í okkar sögu. Takk fyrir allt saman."
Athugasemdir