Fotbolti.net
18.06.26 - 01:04
Jóhann Þór Hólmgrímsson

HM: Mikil dramatík í sigri Gana

Antoine Semenyo í baráttunni

Antoine Semenyo í baráttunni

Canon

Mynd: EPA

Gana 1-0 Panama
1-0 Caleb Yirenkyi ('90 )
Gana og Panama áttust við í L-riðli á HM í nótt. Liðin eru með Englandi og Króatíu í riðli en England vann góðan sigur á Króatíu í kvöld.

Búist var við því fyrir fram að England og Króatía myndu enda í tveimur efstu sætunum en sigurvegarinn í leik næturinnar myndi gefa sér einhverja möguleika á að berjast við þau.

Það er lítið um stórstjörnur í liðunum en fólk beið eftir því að sjá hvað Antoine Semenyo myndi gera hjá Gana eftir frábært tímabil með Man City.

Hann átti erfitt uppdráttar eins og aðrir samherjar hans í fyrri hálfleik. Fyrri hálfleikurinn var mjög bragðdaufur en Panama var líklegri aðilinn.

Leikurinn opnaðist aðeins í seinni hálfleik en það stefndi í markalaust jafntefli. Alveg þangað til á fimmtu mínútu í uppbótatíma. Gana komst í skyndisókn og Caleb Yirenkyi, leikmaður Nordsjælland, kom boltanum í netið af stuttu færi eftir sendingu frá Brandon Thomas-Asante.

Sex mínútum var bætt við en þegar átta mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma fór Orlando Mosquera, markvörður Panama, inn i teig Gana og átti skalla sem Benjamin Asare í marki Gana varði.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.