Í fyrsta sinn sem báðir þjálfarar eru á áttræðisaldri

Hugo Broos.

Mynd: EPA

Hugo Broos.

Mynd: EPA
Hugo Broos, landsliðsþjálfari Suður-Afríku, og Miroslav Koubek, landsliðsþjálfari Tékklands, eru báðir 74 ára gamlir.
Liðin eru nú að keppa á HM og þegar þessi frétt er skrifuð leiða Tékkar 1-0 eftir mark Michal Sadilek sem kom eftir innkast sem splundraði vörn Afríkumanna.
Þetta er í fyrsta sinn í HM sögunni sem þjálfarar beggja liða sem mætast eru yfir 70 ára aldrinum.

Elsti þjálfari mótsins er Dick Advocaat, þjálfari Curacao, en Hollendingurinn er 78 ára og varð elsti þjálfari HM sögunnar þegar Curacao tapaði 7-1 fyrir Þýskalandi í fyrstu umerð riðlakeppninnar.

Miroslav Koubek.

Mynd: EPA

Dick Advocaat.

Mynd: EPA