Kyle mögulega kviðslitinn


Mynd: Fótbolti.net - Helgi Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Helgi Gunnarsson
Kyle McLagan (1995) var ekki með Fram þegar liðið heimsótti KA á mánudagskvöld. Bandaríkjamaðurinn er yfirleitt hluti af varnarlínu Fram en glímir við meiðsli sem halda honum frá vellinum og er óvíst hvenær hann snýr til baka.
Hann var heldur ekki með í leiknum gegn KR í síðasta mánuði, en kom við sögu í tveimur leikjum í millitíðinni.
Hann var heldur ekki með í leiknum gegn KR í síðasta mánuði, en kom við sögu í tveimur leikjum í millitíðinni.
„Kyle er undir leiðsögn læknis, fór í myndatöku út af því sem kallast 'sports hernia' (í. íþróttakviðslit) sem hann er hugsanlega með. Hann er í meðhöndlun, er meiddur og hefur ekkert æft síðan í síðustu viku og hann verður væntanlega ekki klár í næsta leik," segir Rúnar Kristinsson sem er þjálfari Fram.
Næsti leikur Fram verður gegn Víkingi en Kyle kom einmitt í Fram frá Víkingum fyrir tímabilið 2024. Toppslagurinn fer fram á Lambhagavellinum í Úlfarsárdal á sunnudagskvöld.
Næsti leikur Fram verður gegn Víkingi en Kyle kom einmitt í Fram frá Víkingum fyrir tímabilið 2024. Toppslagurinn fer fram á Lambhagavellinum í Úlfarsárdal á sunnudagskvöld.




