Fotbolti.net
18.06.26 - 17:08
Elvar Geir Magnússon

Neymar ferðast ekki með Brasilíu

Neymar ferðast ekki með Brasilíu
Canon

Mynd: EPA

Brasilíska fótboltasambandið hefur staðfest að Neymar muni ekki ferðast með liðinu til Philadelphiu þar sem Brassar leika gegn Haítí í öðrum leik sínum á HM.

Sóknarmaðurinn verður áfram í herbúðum Brassa í New Jersey þar sem hann er að jafna sig af meiðslum. Hann er farinn að æfa með liðsfélögum sínum en engin áhætta verður tekin í komandi leik.
Neymar missti af fyrsta leik Brasilíu á mótinu, jafnteflisleiknum gegn Marokkó.

Neymar, sem er 34 ára, er ein skærasta stjarna í sögu Brasilíu. Hann er markahæsti maður landsliðsins og hefur átt afar farsælan feril hjá Barcelona og Paris Saint-Germain.

Brasilía og Haítí mætast aðfaranótt laugardags, 00:30.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.