Fotbolti.net
18.06.26 - 00:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Dressmann

Theodór Óskars spáir í leiki dagsins á HM

Theodór Ingi er leikmaður Fylkis.

Theodór Ingi er leikmaður Fylkis.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það eru fjórir leikir framundan á HM næsta sólarhringinn. Fyrsta umferð riðlakeppninnar klárast og önnur umferðin hefst.

Theodór Ingi Óskarsson, sem átti stórleik í sigri Fylkis gegn Gróttu í Mjólkurbikarnum, á dögunum spáir í leikina að þessu sinn.
Úsbekistan 1 - 2 Kólumbía (02:00
Kólumbíski prinsinn Helber Josua Catano er að eiga erfiða daga í
Ólafsvík en mun hinsvegar vaka yfir þessum leik og horfa á sigur hjá sínum mönnum og mætir síðan ósofinn í næsta leik. Úsbekistan með virkilega vanmetið lið en ætli ég verði ekki að segja sigur Kólumbíumanna svo Josua taki ekki enn eitt dramakastið. Luiz Díaz minn maður kastaður burt eins og hverri annari kúkableyju í Liverpool hendir í eitt solo goal og James Rodríguez með eitt úr aukaspyrnu. Brósi er grjótharður City maður þannig ætli ég verði ekki að segja Khusanov með mark eftir klafs úr horni.

Tékkland 2 - 2 Suður-Afríka (16:00)
Virkilega spennandi leikur þarna, Borgnesingurinn litli Hlynur Sævar sagði mér að þetta færi 3-0 fyrir Suður Afríku. Hann á erfitt með tölur þannig ég ætla að segja að þetta fari X og Suður Afríski dansinn verði tekinn á ný.

Sviss 5 - 1 Bosnía og Hersegóvína (19:00)
Svissneska geðveikin fer af stað eftir vonbrigðartölur í síðasta leik. Xhaka minn maður mun eiga stórleik og Kolasinac skepnan skorar sárabótarmark undir lokin.

Kanada 4 - 0 Katar (22:00)
Heimasigur staðreynd gegn arfaslöku Katar liði. Meðalstærðin í landsliði Katar er 165 þannig hugur minn er hjá Arnari Núma á meðan leik stendur.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
James Rodriguez.

James Rodriguez.

Canon

Mynd: EPA

Granit Xhaka.

Granit Xhaka.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.