Vildu hafa of mikla stjórn á leiknum


Mynd: EPA

Eftirminnilegi undirbolurinn.

Mynd: EPA


Mynd: EPA
Flestir muna eftir gullaldarkynslóð Spánverja sem unnu þrjú stórmót í röð, eina Evrópuþjóð sem hefur afrekað það í sögunni. Spánverjar unnu EM 2008, HM 2010 og EM 2012 sem verður að teljast ansi vel af sér vikið en liðið er oft minnistætt fyrir tiki taka bolta sem stjörnuprýtt liðið bauð upp á. Liðið var skipað af stjörnum Barcelona og Real Madrid og þykir eitt það besta í sögu landsliða.
En HM frammistaða þeirra var ekki eins stórkostleg og fólk kann að hugsa. Flestir muna eftir úrslitaleiknum gegn Hollendingum og þessu fræga sigurmarki frá Andrés Iniesta í framlengingunni þar sem hann reif sig á eftirminnilega hvíta undirboltinn. Ásamt því er minnistætt augnablik þegar Nigel De Jong karate sparkaði Xabi Alonso í bringuna og á óskiljanlegan hátt slapp með einungis gult spjald. En á 120 mínútum gerðist fátt annað marktækt að undanskildu einu færi sem Arjen Robben lét Iker Kasillas verja frá sér.
Ásamt úrslitaleiknum sem lauk með 1-0 sigri, fóru allir leikir liðsins í útsláttarkeppninni 1-0, en það er eitthvað sem ekkert annað lið hefur gert á stórmóti. Leikir liðsins í útsláttarkeppninni voru allir fremur svipaðir en að undanskildum úrslitaleiknum sjálfum unnust allir leikirnir með marki í seinni hálfleik og þar við sat.
Í heildina fóru fimm af sjö leikjum liðsins 1-0, en í fyrsta leik í riðlakeppni tapaði liðið gegn Sviss, sem átti þó ekki eftir að koma að sök. Spánverjar unnu í kjölfarið Hondúras 2-0 og í lokaleik riðilsins 2-1 gegn Síle. Því var sá leikur liðsins sem sá flest mörk gegn Síle en einungis þrjú mörk voru skoruð þar.
Það er engin spurning að lið Spánverja hafi verið stórkostlegt fótboltalið en leikir þeirra á HM 2010 einkenndust af mikilli stjórn og lítið af mörkum.
Fréttin er hluti af pistli sem birtist 13. júní á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistillinn í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.
Smelltu hér til að skrá þig í fría viku og lesa pistilinn í heild sinni.

Eftirminnilegi undirbolurinn.

Mynd: EPA




