18.07.05 - 14:10
Dalmat til Racing (Staðfest)

Loksins farinn frá Inter

Loksins farinn frá Inter

Stephane Dalmat hefur skrifað undir 5 ára samning við spænska liðið Racing Santander. Þessi 26 ára miðjumaður eyddi síðasta tímabili í láni hjá Toulouse í Frakklandi frá Inter Milan, en hefur nú ákveðið að yfirgefa Ítalíu.
Dalmat gekk til liðs við Inter frá Paris Saint German árið 2001 og var þá talinn með efnilegri miðjumönnum evrópu.
Eftir að hafa mistekist að komast í byrjunarlið Inter Milan hélt Dalmat til Tottenham á Englandi árið 2003 og stóð sig mjög vel þar.
Dalmat mun nú reyna að festa sig í sessi á Spáni, en Dalmat tók á sig mikla launalækkun til þess að fara til Racing. Spænska liðið lenti í 16. sæti á síðustu leiktíð og er því Dalmat góð viðbót við liðið.