18.07.05 - 14:57
Magnús Már Einarsson
Wright-Phillips samdi við Chelsea (Staðfest)

Phillips í baráttu við Stan Lazaridis.

Phillips í baráttu við Stan Lazaridis.

Shaun Wright-Phillips hefur skrifað undir fimm ára samning við Chelsea og hefur þessi hægri kantmaður því gengið til liðs við liðið frá Manchester City á 21 milljón punda.
Phillips kom til Stamford Bridge og stóðst læknisskoðun og samdi við liðið en með honum í för voru Ian Wright stjúpfaðir hans og umboðsmaðurinn Mitchell Thomas.
Phillips mun leika í treyju númer 24 hjá Chelsea. Aðspurður í ástæðuna á þessu vali á treyjunúmeri sagði Phillips ,,Þetta er dagurinn sem sonur minn fæddist á. Hann elskar fótbolta."
Phillips mun fá samkeppni um kantstöðurnar þar sem Joe Cole, Arjen Robben og Damien Duff eru fyrir hjá Chelsea. Hann sagði: ,,Það er í lagi fyrir mér. Ég hef aldrei búist við að vera einhversstaðar og labba inn í eitthvað lið ef ég á að vera heiðarlegur við ykkur.
Samkeppni er bara holl og það mun hjálpa við að gera mig að betri leikmanni. Ég vil reyna að ná í einhverjar medalíur og vera hluti af liðinu. Ég vil spila vel fyrir mig sjálfan, aðdáendurna og þjálfaraliðið."
Vissur þú að:
Wright-Phillips var látinn fara frá Nottingham Forrest þegar að hann var unglingur.