18.07.05 - 21:35
Gilardino til AC Milan (Staðfest)

Gilardino loksins kominn í stórlið

Gilardino loksins kominn í stórlið

AC Milan festu í dag kaup á Ítalska sóknarmanninum Alberto Gilardino frá Parma á £17.2 milljónir punda. Þessi félagsskipti hafa tekið langan tíma en allt náði þó endum saman í dag eftir að stjórn AC Milan hefðu sett Parma frest til að svara boðinu.
Gilardino sem að skoraði 23 mörk á tveimur síðustu leiktíðum skrifaði undir 5 ára samning og kemur væntanlega til með að halda áfram að skora með betri mannskap á bakvið sig.
Hann mun væntanlega spila við hlið Andriy Shevchenko eftir að Jon Dahl Tomasson og Hernan Crespo yfirgáfu liðið nú fyrr í sumar.
Filippo Inzaghi er enn að jafna sig á hnémeiðslum og Christian Vieri sem að er nýgenginn til liðs við AC mun væntanlega vera notaður sparlega eftir langt meiðslatímabil hjá honum.
"Ég er mjög ánægður, þetta voru langar viðræður á milli liðanna sem að enduðu á besta hugsanlega veg, sagði Gilardino.
Allt sem að kemur þessu liði við heillar mig - liðið sjálft, sagan á bakvið það og allir þessir frábæru leikmenn sem að spiluðu og spila með AC Milan.
Af hverju valdi ég Milan? Vegna þess að þeir eru sterkasta liðið í Evrópu og fyrir mig er það mikill heiður að fá að klæðast þessum litum."