Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 18. júlí 2021 22:14
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu stórbrotið mark Jóns Dags
Ástríða!
Ástríða!
Mynd: Getty Images
Kantmaðurinn Jón Dagur Þorsteinsson fer vel af stað á nýju tímabili í dönsku úrvalsdeildinni.

Jón Dagur og félagar í AGF fengu meistarana í Bröndby í heimsókn. Jón Dagur var mjög líflegur í byrjun leiks og hann kom AGF yfir þegar tíu mínútur voru liðnar. Undir lok fyrri hálfleiks jafnaði Bröndby en það voru ekki fleiri mörk skoruð í seinni hálfleik og lokatölur því 1-1 - jafntefli.

Mark Jóns Dags var einkar glæsilegt; hann fékk boltann, keyrði á vörnina, fór yfir á hægri fótinn og smellti boltanum í markið.

Jón Dagur fer mjög vel af stað í deildinni og verður spennandi að sjá hvernig tímabilið þróast hjá þessum hæfileikaríka leikmanni.

Markið má sjá hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner