18.07.26 - 15:07
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarlið Þórs og Víkings: Aron Einar beint í liðið - Györbreytt lið Víkings

Aron Einar og Gylfi mætast í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þorri Ingólfs spilar sinn fyrsta leik á tímabilinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sveinn Margeir beint í liðið hjá Víkingi.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Gyrðir byrjar hjá Þór.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Einar og Gylfi mætast í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Klukkan 16:00 hefst leikur Þórs og Víkings á VÍS vellinum þegar botnlið Þórs tekur á móti toppliði Víkings.
Víkingur kemur inn í leikinn eftir að hafa slegið út ungversku meistarana í Györ í forkeppni Meistaradeildarinnar á þriðjudag en Þór tapaði sínum síðasta leik 6-1 gegn Fram.
Víkingur kemur inn í leikinn eftir að hafa slegið út ungversku meistarana í Györ í forkeppni Meistaradeildarinnar á þriðjudag en Þór tapaði sínum síðasta leik 6-1 gegn Fram.

TENGT EFNI
Aron og Gylfi geta mæst á morgun - „Rætt það sín á milli hvernig þeir ætla að taka hvor á öðrum“
Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, gerir fjórar breytingar á sínu liði frá leiknum gegn Fram. Ásbjörn Líndal, Sverir Páll Ingason, Vilhelm Ottó og Sigfús Fannar taka sér sæti á bekknum. Inn í liðið koma þeir Aron Einar Gunnarsson, Gyrðir Hrafn Guðbrandsson, Fannar Daði Malmquist og Yann Affi.
Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, gerir sjö breytingar á sínu liði frá leiknum í Ungverjalandi. Þeir Ögmundur, Gylfi Þór, Tarik og Sveinn Gísli byrja líkt og í Györ og þeir Þorri Ingólfsson, Sveinn Margeir Hauksson, Aron Elís Þrándarson, Viktor Örlygur Andrason, Davíð Örn Atlason, Róbert Orri Þorkelsson og Ármann Ingi Finnbogason koma inn í liðið. Gylfi er fyrirliði Víkings í dag.
Þorri er að spila sinn fyrsta leik í sumar en hann er sóknarmaður sem fæddur er 2009. Sveinn Margeir var kallaður úr láni hjá KA á fimmtudag og er mættur beint í byrjunarliðið. Róbert Orri er þá að spila sin fyrsta leik síðan í byrjun maí.
Helgi Guðjónsson og Valdimar Þór Ingimundarson taka sér sæti á bekknum en þeir Oliver Ekroth, Nikolaj Hansen, Óskar Borgþórsson, Daníel Hafsteinsson og Karl Friðleifur Gunnarsson eru ekki í hópnum. Daði Berg Jónsson, Stígur Diljan Þórðarson og Aron Snær Friðriksson eru á bekknum en þeir hafa allir verið að glíma við meiðsli.

Byrjunarlið Þór
- 1. Aron Birkir Stefánsson (m) (f)
- 5. Yann Emmanuel Affi
- 6. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson
- 8. Einar Freyr Halldórsson
- 14. Aron Einar Gunnarsson
- 15. Kristófer Kristjánsson
- 16. Bjarni Guðjón Brynjólfsson
- 17. Fannar Daði Malmquist Gíslason
- 19. Ragnar Óli Ragnarsson
- 22. Ágúst Eðvald Hlynsson
- 25. Christian Jakobsen
Byrjunarlið Víkingur R.
- 47. Ögmundur Kristinsson (m)
- 2. Sveinn Gísli Þorkelsson
- 8. Viktor Örlygur Andrason
- 10. Gylfi Þór Sigurðsson (f)
- 11. Þorri Ingólfsson
- 15. Róbert Orri Þorkelsson
- 20. Tarik Ibrahimagic
- 21. Aron Elís Þrándarson
- 24. Davíð Örn Atlason
- 30. Sveinn Margeir Hauksson
- 69. Ármann Ingi Finnbogason

Þorri Ingólfs spilar sinn fyrsta leik á tímabilinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sveinn Margeir beint í liðið hjá Víkingi.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Gyrðir byrjar hjá Þór.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 20 | +46 | 51 |
| 2 | KR | 20 | +27 | 43 |
| 3 | Fram | 20 | +14 | 43 |
| 4 | Breiðablik | 20 | +5 | 30 |
| 5 | Keflavík | 20 | -3 | 28 |
| 6 | ÍA | 20 | -4 | 26 |
| 7 | Stjarnan | 20 | -10 | 24 |
| 8 | Valur | 20 | -7 | 23 |
| 9 | FH | 20 | -12 | 18 |
| 10 | ÍBV | 20 | -12 | 17 |
| 11 | KA | 20 | -14 | 16 |
| 12 | Þór | 20 | -30 | 15 |