Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 18. ágúst 2019 14:24
Brynjar Ingi Erluson
Sigur í fyrsta leik hjá Söru Björk
Sara Björk var að sjálfsögðu í byrjunarliði Wolfsburg í dag
Sara Björk var að sjálfsögðu í byrjunarliði Wolfsburg í dag
Mynd: Mirko Kappes
Þýska félagið Wolfsburg vann Sand 1-0 í fyrstu umferð þýsku deildarinnar í dag en Wolfsburg er ríkjandi meistari.

Íslenska landsliðskonan Sara Björk Gunnarsdóttir spilar með Wolfsburg en hún lék allan leikinn í dag.

Pernille Harder gerði eina mark leiksins á 48. mínútu en Sand lenti í 8. sæti deildarinnar á síðasta tímabili.

Wolfsburg ætlar sér stóra hluti á komandi tímabili en liðið komst í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu á síðasta ári.

Liðið vann þá Meistaradeildina árin 2013 og 2014 og komst einnig í úrslitaleikinn árið 2016 en tapaði fyrir Lyon sem hefur verið áskrifandi af bikarnum síðustu fjögur árin.
Athugasemdir
banner
banner
banner