Guðjón Ernir Hrafnkelsson, hægri bakvörður úr Hetti/Huginn, fór í gær til Svíþjóðar þar sem hann verður á reynslu hjá IFK Gautaborg.
Guðjón Ernir er 18 ára gamall en hann mun æfa með U19 ára liði Gautaborg.
„Þar tekur á móti honum Hattar goðsögnin Hjálmar Jónsson sem þjálfar unglingalið Gautaborgar en Hjálmar sá til Guðjóns í sumar og hreifst af honum," segir á Facebook síðu Hattar.
„Guðjón Ernir hefur spilað rúmlega fjörtíu meistaraflokksleiki þrátt fyrir að vera einungis 18 ára gamall. Þá hefur hann tvö sumur í röð verið valinn efnilegasti leikmaður meistaraflokks karla. Þarna er þrusu leikmaður á ferð sem við óskum góðs gengis."
Athugasemdir