Fyrrum landsliðsmaðurinn Rúrik Gíslason hefur gefið út sitt fyrsta lag og tónlistarmyndband.
Rúrik gefur út lagið ásamt Doctor Victor en það er komið út á helstu streymisveitum.
Lagið ber nafnið „Older" en hægt er að hlusta á það hér.
Hinn 32 ára gamli Rúrik lagði skóna á hilluna í fyrra til að einbeita sér að öðrum verkefnum.
Rúrik hefur nú gefið út lag auk þess sem hann hefur verið að leika í kvikmyndum og á næstunni mun hann taka þátt í sjónvarpsþættinum „Let's dance" í Þýskalandi.
Hér að neðan má sjá tónlistarmyndbandið.
Athugasemdir