Fotbolti.net
19.05.14 - 21:48
Daníel Freyr Jónsson

Ásmundur: Hefði haldið að þetta væri gult spald

Auglýsing
Ásmundur: Hefði haldið að þetta væri gult spald
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

,,Stigin telja og þar með er leikurinn stórkostlegur í okkar augum allavega,\" sagði Ásmundur Arnarsson þjálfari Fylkis eftir 1-2 sigur á Víkingum í Laugardalnum í kvöld.
,,En það komu spilkaflar inn á milli og mörkin góð svo við erum sáttir við þetta,\" sagði Ásmundur.

Tómas Joð Þorsteinsson fékk að líta rauða spjaldið fyrir brot þegar stutt var eftir af leiknum. Ásmundur var ekki sáttur við dóminn.

,,Það sér þetta hver með sínu nefi, ég hefði haldið að í flestum tilfellum væri þetta gult spjald. En að sjálfsögðu er þetta á gráu svæði og dómaratríóið mat þetta sem svo að þetta væri rautt spjald og þeir hafa rétt til þess.\"

Framherjinn Sadmir Zekovic skorað sitt fyrsta mark fyrir Fylki en hann kom til félagsins fyrir 2. umferðina.

,,Það er þannig þegar þú færð senter að þá bíða allir eftir mörkunum frá honum. Það kom hans fyrsta í dag, það er alltaf gott fyrir senter að skora og fylgir því sjálfstraust. Hann er að skapa usla, er sterkur að halda boltanum og fínn að finna holurnar á milli. Heilt yfir er ég mjög ánægður með hann.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.