Rogers orðaður við Chelsea - Mourinho vill Rashford - Arsenal opið fyrir því að selja Jesus
   þri 19. maí 2026 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Joao Pedro með yfirlýsingu - Ancelotti sorgmæddur
Joao Pedro er markahæsti leikmaður Chelsea á tímabilinu.
Joao Pedro er markahæsti leikmaður Chelsea á tímabilinu.
Mynd: EPA
Ancelotti hóf þjálfaraferilinn sem aðstoðarþjálfari ítalska landsliðsins frá 1992 til 1995 en hefur aldrei áður tekið við stjórn á A-landsliði.
Ancelotti hóf þjálfaraferilinn sem aðstoðarþjálfari ítalska landsliðsins frá 1992 til 1995 en hefur aldrei áður tekið við stjórn á A-landsliði.
Mynd: EPA
Það kom mörgum á óvart þegar Joao Pedro, Thiago Silva og Andrey Santos voru ekki valdir í landsliðshóp Brasilíu sem fer á HM í sumar.

Thiago Silva og Andrey Santos hafa ekki tjáð sig eftir að landsliðshópurinn var kynntur en Joao Pedro var fljótur að gefa út stuðningsyfirlýsingu við landsliðið.

„Ég hef alltaf reynt að gera mitt besta til að komast í landsliðshópinn en því miður þá get ég ekki upplifað drauminn um að spila fyrir Brasilíu á HM. Ég held mér rólegum og einbeittum eins og ég reyni alltaf að vera," segir í yfirlýsingunni.

„Hæðir og lægðir eru partur af fótboltanum. Ég óska öllum þeim sem voru valdir í lokahópinn góðrar lukku, ég verð bara eins og hver annar stuðningsmaður sem mun hvetja liðið áfram. Við viljum vinna sjötta heimsmeistaratitilinn!"

Það kemur á óvart að hinn 19 ára gamli Endrick er valinn framyfir Joao Pedro ásamt Luiz Henrique leikmanni Zenit. Þá kemur einnig á óvart að Roger Ibanez hafi verið valinn í vörnina frekar en Thiago Silva og að Danilo Santos hafi verið valinn á miðjuna framyfir nafna sinn Andrey Santos.

Carlo Ancelotti landsliðsþjálfari Brasilíu segist finna til með þeim leikmönnum sem voru ekki valdir í hópinn en að þeir munu fá tækifæri til að sanna sig í framtíðinni. Það á þó líklega ekki við um 41 árs gamlan Thiago Silva sem skipti til FC Porto í vetur og stóð sig frábærlega er liðið tryggði sér Portúgalsmeistaratitilinn.

Silva skipti til Portúgal til að vekja athygli á sér fyrir HM en fyrir það var hann mikilvægur hlekkur í varnarlínu Fluminense í heimalandinu.

„Ég er sorgmæddur fyrir hönd þeirra leikmanna sem missa af HM, eins og Joao Pedro. Þeir munu fá fleiri tækifæri í framtíðinni."

   18.05.2026 23:04
Neymar fer með á HM - Svona er brasilíski hópurinn

Slapp
banner
banner