Fotbolti.net
19.06.20 - 23:50
Sigurður Marteinsson

Máni Austmann: Geggjað að vera með Degi í liði

Auglýsing
Máni Austmann: Geggjað að vera með Degi í liði
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Máni Austmann Hilmarsson skoraði þriðja mark Leiknis í kvöld eftir sendingu frá Degi Austmann bróður sínum. Hann var ánægður í leikslok. „Já við erum sáttir, geggjað að loksins byrja þetta''
Leiknismenn komu mjög ákveðnir til leiks og virkuðu vel undirbúnir. Hann sagði þá hafa farið vel yfir leik Þróttar í vikunni. „Svo erum við búnir að æfa hrikalega vel eftir þessa COVID pásu, getum ekki beðið eftir því að halda áfram með þetta sumar''

Eins og áður sagði skoraði Máni eftir sendingu frá bróður sínum. Þeir bræður virðast vera sáttir með að spila loksins saman í sama liðinu. „Geggjað að vera með Degi í liði, góð sending, góður skalli, kemur mark''

Flestir telja að 6-7 lið verði að berjast um það að komast upp úr Lengjudeildinni í sumar og að Leiknir sé mögulega eitt af þeim. Máni tók heldur betur undir það. „Við ætlum upp, staðfest''
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.