Fotbolti.net
19.06.25 - 18:18
Ívan Guðjón Baldursson

Parma stelur þjálfara frá Arsenal (Staðfest)

Parma stelur þjálfara frá Arsenal (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Ítalska Serie A félagið Parma er búið að tilkynna ráðningu á nýjum aðalþjálfara. Sá kemur úr röðum Arsenal þar sem hann starfaði sem aðstoðarþjálfari Mikel Arteta.
Carlos Cuesta gerir tveggja ára samning við Parma með möguleika á auka ári. Liðið endaði með 36 stig úr 38 umferðum á síðustu leiktíð í ítalska boltanum, fimm stigum frá fallsæti.

Cuesta er 29 ára gamall og var ráðinn til Arsenal eftir að Arteta tók við. Fyrir það hafði hann starfað sem aðstoðarþjálfari hjá U17 liðum Atlético Madrid og Juventus.

Þetta verður fyrsta aðalþjálfarastarf á ferli Cuesta en hann þykir gríðarlega efnilegur þjálfari.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.