Fotbolti.net
19.06.26 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson

Marsch um Kone: Hluti af ástæðunni fyrir að maður elskar hann

Ismael Kone fótbrotnaði gegn Katar

Ismael Kone fótbrotnaði gegn Katar

Canon

Mynd: EPA

Jesse Marsch, þjálfari kanadíska landsliðsins, var gráti næst þegar hann ræddi um meiðsli miðjumannsins Ismael Kone eftir sögulegan 6-0 stórsigur Kanada á Katar í nótt.
Hræðilegt fótbrot og annað rautt í Vancouver - „Mig langar til að gráta“
TENGT EFNI

Hræðilegt fótbrot og annað rautt í Vancouver - „Mig langar til að gráta“

Kone fótbrotnaði illa snemma í síðari hálfleik eftir að Assim Madibo braut á honum.

Hann þurfti aðhlynningu í rúmar sex mínútur áður en hann var borinn af velli.

Leikmenn Kanada voru eðlilega skelkaðir en fundu viljann til að klára dæmið, þó meiðslin hafi vissulega skyggt á þennan fyrsta sigur Kanada á heimsmeistaramóti.

Marsch var tilfinningaríkur þegar hann var spurður út í Kone eftir leikinn en er viss um að hann mæti sterkari til baka á völlinn.

„Ismael er svo frábær strákur. Hann er svo ófullkominn, en það er hluti af ástæðunni fyrir því að maður elskar hann. Ismael getur gert frábæra hluti sem enginn annar getur gert, en missir síðan einbeitingu á næsta augnabliki.

„Hann er holdgervingur þess sem við stöndum fyrir sem lið og þetta er svakalegur missir fyrir okkur.

„Það verður allt í góðu með hann. Við munum finna góða lækna og koma honum aftur á völlinn, en þessi strákur er stór hluti af framtíð okkar og öllu því sem við ætlum okkur,“
sagði Marsch.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.