Fotbolti.net
19.06.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Snýr ekki aftur fyrr en í lok árs

Sjúkrateymi Kanada hugar að Kone

Sjúkrateymi Kanada hugar að Kone

Canon

Mynd: EPA

Kanadíski miðjumaðurinn Ismael Kone verður líklega frá í fjóra til mánuði eftir að hafa tvíbrotnað á fæti gegn Katar í annarri umferð heimsmeistaramótsins í nótt.
Hræðilegt fótbrot og annað rautt í Vancouver - „Mig langar til að gráta“
TENGT EFNI

Hræðilegt fótbrot og annað rautt í Vancouver - „Mig langar til að gráta“

Assim Madibo fór harkalega í Kone snemma í síðari hálfleik og strax varð ljóst að meiðslin væru alvarleg.

Kone var fluttur af velli á sjúkrabörum um sex mínútum síðar og Madibo fékk að líta rauða spjaldið, sem var annað rauða spjald Katar í leiknum. Gestgjafarnir kláruðu hins vegar leikinn með stæl, unnu 6-0 og fögnuðu sínum fyrsta sigri á heimsmeistaramóti.

Fabrizio Romano hefur fengið fregnir af því að Kone, sem er 24 ára gamall, hafi tvíbrotnað á vinstri fæti og sé nú staddur á sjúkrahúsi ásamt móður sinni, Suzanne. Hann mun gangast undir aðgerð og tekur síðan endurhæfing við.

Kone verður ekki meira með á HM, en áætlað er að hann verði frá í fjóra til fimm mánuði. Hann snýr því ekki aftur á völlinn fyrr en undir lok árs.

Miðjumaðurinn er á mála hjá Sassuolo, sem spilar í A-deildinni á Ítalíu, og var í lykilhlutverki þegar liðið hafnaði í 11. sæti sem nýliði á síðustu leiktíð.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.