Lykilmaður framlengir við Breiðablik

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Elín Helena Karlsdóttir hefur framlengt samning sinn við Breiðablik, en þetta kemur fram í tilkynningu félagsins.
Elín hefur verið lykilkona í liði Blika síðustu ár og spilaði veigamikið hlutverk á síðasta ári þegar Blikar urðu Íslands- og bikarmeistarar.
Hún er uppalin í Breiðabliki og hefur alls spilað 132 leiki fyrir meistaraflokk félagsins og skorað eitt mark.
Elín á níu leiki að baki fyrir yngri landslið Íslands og var valin í A-landsliðið í fyrsta sinn fyrr á árinu.