Fotbolti.net
19.07.05 - 19:25
Arnar Geir Halldórsson

Ben Foster til Manchester United (Staðfest)

Ben Foster

Ben Foster

Canon
Manchester United hafa gengið frá kaupum á markmanninum Ben Foster en Foster kemur frá Íslendingaliðinu Stoke City. Kaupverðið er 1 milljónir punda en getur þó farið upp í allt að 3 milljónir punda. Foster er 22 ára og hefur aldrei spilað leik fyrir aðallið félagsins.
,,Foster hefur hæfileika til að gera góða hluti hjá United og óskum við honum alls hins besta hjá félaginu" sagði John Rudge yfirmaður knattspyrnumála hjá Stoke. Foster gekk til liðs við akademíu Stoke frá Racing Warwick í ágúst 2002 og hefur einsog áður segir aldrei spilað fyrir aðalliðið, en hann spilaði með unglinga- og varaliði félagsins.

Rudge hafði þetta að segja að lokum: ,,Þetta er ótrúlegur samningur fyrir strákinn og við gátum ekki staðið í vegi fyrir honum er við heyrðum af áhuga Manchester United"

Þetta eru þriðju kaup Sir Alex Ferguson í sumar en hann hefur eins og flestir vita keypt þá Ji-Sung Park frá PSV og markmannin Edwin Van Der Sar frá Fulham.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.