Fotbolti.net
19.07.16 - 23:18
Mist Rúnarsdóttir

Megan: Sigurinn gefur okkur sjálfstraust

Auglýsing
Megan: Sigurinn gefur okkur sjálfstraust
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Hertz
Megan Dunnigan var hetja ÍA í 2-0 sigri liðsins gegn KR í kvöld. Megan skoraði tvö mörk og átti virkilega flottan leik.
„Þetta var góður leikur. Við sóttum mikið og það var það sem við þurftum að gera. Sjálf náði ég að skora og þetta gefur okkur sjálfstraust fyrir næsta leik,\" sagði markaskorarinn að leik loknum.

„Þetta er mjög mikilvægur sigur. Við þurftum á sjálfstrausti að halda og að halda móralnum góðum. Þetta var góður liðssigur. Allar stóðu sig vel varnarlega.\"

„Við ætluðum að keyra á þær og skora mörk. Það lögðu sig allar fram við það og það tókst\"
.

Megan skoraði tvívegis en hún byrjaði leikinn á miðjunni í dag áður en hún fór í bakvörð.

„Það var gaman að skora. Ég er vön að spila bakvörð, aftar á vellinum, en það var gott að skora og hjálpa til við að efla liðsandann.\"

„Ég trúi því að við getum haldið okkur í deildinni ef við leggjum okkur 100% fram gegn öllum liðum og gerum það sem við getum. Þá hef ég fulla trú á að við getum náð í stig af öðrum stigum. Meira að segja toppliðunum. Við getum staðið okkur vel gegn þeim og haldið sæti okkar í deildinni,\"
sagði Megan að lokum en hægt er að horfa á viðtalið við hana í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.