Byrja illa eftir sumarfríið

Mynd: Elfsborg

Mynd: Elfsborg
Íslendingalið Elfsborg tapaði þriðja leik sínum eftir sumarfrí sænsku úrvalsdeildinnar í dag.
Elfsborg hafði ekki tapað í sex leikjum í röð þegar sænska deildin fór í hlé í lok maí.
Liðið hafði þó heldur ekki fagnað sigri í tæpan mánuð og biðin eftir næsta sigri lengdist í dag þegar Elfsborg tapaði 3-1 fyrir Sirius sem var þriðja tap þeirra í röð.
Júlíus Magnússon byrjaði á miðjunni hjá Elfsborg og Ari Sigurpálsson á vængnum. Ari fór af velli þegar um hálftími var til leiksloka en þá var enn markalaust.
Sirius skoraði tvö mörk með aðeins tveggja mínútna millibili áður en sjálfsmark hleypti Elfsborg aftur inn í leikinn. Skotinn Robbie Ure slökkti hins vegar vonir gestanna með sínu öðru marki sínu undir lok leiks og gulltryggði 3-1 sigur Sirius.
Elfsborg er í níunda sæti deildarinnar með 18 stig en Sirius trónir á toppnum með níu stiga forskot.