Fotbolti.net
19.07.26 - 23:08
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Heimsmeistarinn De la Fuente: Get ekki sagt hvernig mér líður

Heimsmeistarinn De la Fuente: Get ekki sagt hvernig mér líður
Canon

Mynd: EPA

Hinn 65 ára gamli Luis de la Fuente, landsliðsþjálfari Spánar, er elsti þjálfarinn til að vinna HM eftir að Spánn lagði Argentíu í úrslitum á HM í kvöld.

De la Fuente tók við liðinu árið 2022 og gerði liðið að Evrópumeisturum tveimur árum síðar og nú tveimur árum eftir þann titil er liðið orðið heimsmeistari.
„Ég er svo stoltur. Stoltur af þessari kynslóð fótboltamanna sem hafa vaxið með þessari hugmynd, verið henni trúir og gert sitt besta. Þeir eru dæmi um lið, hóp, fjölskyldu og safn frábærra leikmanna sem hafa verið einstakir. Ég er svo stoltur af því að hafa fylgt þeim á þessari vegferð, að hafa verið með þeim á þessari braut er heiður," sagði De la Fuente.

„Ég get ekki alveg sagt hvernig mér líður. Allt sem ég get sagt er að þetta var þess virði. Auðvitað er ég mjög tilfinningaríkur núna, sérstaklega eftir að hafa fylgst með þessu á bak við tjöldin. Ég hef talað svo mikið við leikmennina, sem sögðu við mig: 'Stjóri, við höfum unnið allt', og það er frábært. Þessi kynslóð leikmanna er fyrirmynd fyrir spænskar íþróttir, fyrir spænska æsku. Saman erum við miklu sterkari, og þess vegna gleymum við engum.“
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.