Fotbolti.net
10.08.26 - 15:28
Elvar Geir Magnússon

Gabriel Jesus tilbúinn að fara til Napoli

Gabriel Jesus.

Gabriel Jesus.

Canon

Mynd: EPA

Brasilíski sóknarmaðurinn Gabriel Jesus hjá Arsenal er sagður hafa gefið grænt ljós á að fara til Napoli.

Ítalskir fjölmiðlar segja að Napoli þurfi þó fyrst að selja Romelu Lukaku og annað hvort Lorenzo Lucca eða Noa Lang til að geta gert formlegt tilboð í Jesus.
Napoli er með þrjá reynda framherja í sínum röðum en Rasmus Höjlund er sá eini sem er alveg víst að verði áfram hjá félaginu þegar sumarglugganum verður lokað.

Lukaku, sem er 33 ára, virðist á útleið en Fenerbahce og lið í MLS-deildinni hafa áhuga á honum. Líklegt er að Napoli taki boðum upp á 7-8 milljónir evra.

Lucca náði sér ekki á strik eftir að hann kom til Udinese og hann átti svo hrikalega vonda lánsdvöl hjá Nottingham Forest seinni hluta síðasta tímabils.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.