Óskar Hrafn eftir stórsigur: Áttum að skora töluvert fleiri mörk


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR tók á móti Stjörnunni á Meistaravöllum í 15. umferð Bestu deildar karla. Leiknum lauk með 5-0 stórsigri KR en Fótbolti.net var á staðnum og heyrði í Óskari Hrafni, þjálfara KR, eftir leikinn.
„Þetta var frábær leikur hjá okkur frá fyrstu til síðustu mínútu, við héldum einbeitingu og gerðum hlutina vel allan leikinn. Við komum með orkustigið, sem við þurftum að koma með, strax frá byrjun í þennan leik. Ég er bara gríðarlega ánægður með frammistöðuna.''
KR var 2-0 yfir í hálfleik eftir sannfærandi fyrri hálfleik en liðið mætti mjög vel út í seinni hálfleikinn og bætti við þremur mörkum. Var þetta besta frammistaða KR í sumar?
„Já, ég held að það megi alveg segja það, svona heilsteyptasta frammistaðan í sumar, ekkert endilega af því að við höldum núllinu, en þetta voru á köflum ansi miklir yfirburðir þar sem við sundurspiluðum þá. Hefðum auðvitað átt að skora töluvert fleiri mörk þannig það má segja að þetta hafi verið sú besta.''
KR hélt hreinu í fyrsta sinn í sumar eftir 18 leiki í deild og bikar.
„Það er auðvitað jákvætt, við erum auðvitað lið sem að spilar hátt og sækir á mörgum mönnum en auðvitað er það jákvætt og einfaldar hlutina. Markmiðið er ekkert endilega í hverjum leik að halda hreinu en við viljum vera betri í að verjast því sem kemur á okkur og þá er kannski einn fylgifiskur þess að við förum að halda aðeins oftar markinu okkar hreinu.''
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum að ofan.



