Fotbolti.net
19.07.26 - 15:56
Brynjar Ingi Erluson

Scaloni: Messi er lifandi goðsögn

Lionel Scaloni

Lionel Scaloni

Canon

Mynd: EPA

Lionel Scaloni, landsliðsþjálfari Argentínu, ræddi við fjölmiðla fyrir úrslitaleik HM gegn Spáni. Leikurinn fer fram á MetLife-leikvanginum í New Jersey í Bandaríkjunum og hefst klukkan 19:00.
De La Fuente: Ætla ekki að setja mann á Messi
TENGT EFNI

De La Fuente: Ætla ekki að setja mann á Messi

Argentínumenn eiga möguleika á að verja heimsmeistaratitilinn og verða heimsmeistarar annað mótið í röð.

Argentínska þjóðin hefur heldur betur verið dekruð á undanförnum árum. Landsliðið hefur tvívegis unnið Copa America og getur nú bætt öðrum heimsmeistaratitlinum í röð í safnið.

Verkefnið verður þó langt frá því að vera auðvelt því hinum megin bíða ríkjandi Evrópumeistarar Spánar.

„Ég verð farinn að hafa áhyggjur um leið og Spánverjarnir yfirgefa hótelið. Þegar þeir setjast upp í rútuna og halda af stað byrja áhyggjurnar. Þeir eru með frábært lið og allt við þá veldur mér áhyggjum.“

„Þeir eru einnig með leikmenn sem hafa spilað á stærstu mótum heims. Þetta eru toppleikmenn og þegar boltinn byrjar að rúlla gleyma þeir pressunni og einbeita sér að leiknum.“

„Þeir hafa leikið til úrslita á EM og í Þjóðadeildinni og búa yfir mikilli reynslu. Við höfum því ekki endilega forskot þótt við séum aftur komin í úrslitaleik,“ sagði hann ennfremur.

Þetta verður að öllum líkindum síðasta heimsmeistaramót Lionel Messi, sem hefur farið hamförum og skorað átta mörk í keppninni, en Scaloni segir fólki að njóta meðan það getur.

„Hann er lifandi goðsögn og hefur þegar skrifað sig í sögubækurnar. Það er ótrúlegt að hann sé kominn í úrslitaleik HM, 39 ára gamall. Við verðum að njóta hans á meðan hann er enn að spila, rétt eins og við gerðum með Diego Maradona.“

„Við söknum Diego en Messi er enn hér með okkur. Hann og þessi hópur hafa fært okkur ógleymanleg ár og við munum alltaf minnast þeirra,“ sagði Scaloni að lokum.
Lionel Messi gæti verið að spila sinn síðasta leik á HM

Lionel Messi gæti verið að spila sinn síðasta leik á HM

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.