Fotbolti.net
19.08.19 - 20:52
Arnar Helgi Magnússon

England: Pogba misnotaði vítaspyrnu í jafntefli gegn Úlfunum

Neves horfir á eftir boltanum í netið

Neves horfir á eftir boltanum í netið

Canon

Mynd: Getty Images

Wolves 1 - 1 Manchester Utd
0-1 Anthony Martial ('27 )
1-1 Ruben Neves ('55 )
1-1 Paul Pogba ('68 , Misnotað víti)

Manchester United mistókst að sigra Wolves þegar liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Paul Pogba klúðraði vítaspyrnu þegar rúmar tuttugu mínútur voru eftir af leiknum.
Anthony Martial skoraði í sínum öðrum leik í röð þegar hann kom Manchester United yfir á 27. mínútu leiksins. Marcus Rashford stakk þá boltanum inn fyrir vörn Úlfanna og Martial stýrði boltanum í netið úr nokkuð þröngu færi.

Manchester United var miklu betra liðið í fyrri hálfleik og hefði getað skorað fleiri mörk. Staðan 0-1 þegar flautað var til hálfleiks.

Ruben Neves jafnaði leikinn þegar tíu mínútur voru liðnar af síðari hálfleik með stórkostlegu marki.

Joao Moutinho renndi þá boltanum út á Neves sem að var búinn að staðsetja sig fyrir utan teig, tók eina snertingu og lét síðan vaða. Boltinn í slánna og þaðan í netið! Stórkostlegt mark og staðan orðin jöfn.

Manchester United fékk vítaspyrnu á 67. mínútu þegar Connor Coady tók Pogba niður í teignum. Jonathan Moss, dómari, ekki í neinum vafa.

Pogba fór sjálfur á vítapunktinn en Rui Patricio gerði sér lítið fyrir og varði spyrnuna.


Úlfarnir voru sprækir á lokamínútunum og fengu fín færi til þess að skora sigurmarkið. Allt kom fyrir ekki og leiknum lauk með 1-1 jafntefli.

Manchester United nú komið með fjögur stig á meðan Úlfarnir eru með tvö.
England: Pogba misnotaði vítaspyrnu í jafntefli gegn Úlfunum
Canon

Mynd: Getty Images

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City9+1021
2Arsenal8+821
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool8+315
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Leeds9+111
11Hull City9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.