Fotbolti.net
19.08.19 - 13:10
Magnús Már Einarsson
Ítalski boltinn

Llorente á leið til Lazio

Llorente á leið til Lazio
Canon

Mynd: Getty Images

Spænski framherjinn Fernando Llorente er nálægt því að ganga frá samningi við Lazio en hann hefur verið í viðræðum við félagið undanfarna daga.

Llorente hefur verið félagslaus undanfarnar vikur eftir að samningur hans rann út hjá Tottenham.

Inter, Napoli og Fiorentina hafa einnig sýnt Llorente áhuga en Lazio virðist vera að landa honum.
Hinn 34 ára gamli Llorente var hjá Tottenham í tvö tímabil þar sem hann skoraði þrettán mörk í 66 leikjum.

Hann þekkir til í ítalska boltanum eftir að hafa leikið með Juventus á sínum tíma.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.