Fotbolti.net
19.08.26 - 21:04
Ívan Guðjón Baldursson

2. deild: Haukar tveimur stigum frá Lengjudeildinni

2. deild: Haukar tveimur stigum frá Lengjudeildinni
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

18. umferð deildartímabilsins í 2. deild karla fór fram í dag og eru Haukar svo gott sem búnir að tryggja sér sæti í Lengjudeildinni næsta sumar.
Lestu um leikinn: Selfoss 2 - 2 Kári
Haukar lögðu Kormák/Hvöt að velli á Blönduósi þökk sé mörkum frá Tómasi Atla Björgvinssyni og Jóni Gísla Stefánssyni á fyrstu 18 mínútunum.

Heimamenn minnkuðu muninn en komust ekki nær, svo lokatölur urðu 1-2. Haukar eiga 41 stig eftir 18 umferðir og eru aðeins tveimur stigum frá því að gulltryggja sér sæti í Lengjudeildinni á næsta ári, á meðan Kormákur/Hvöt siglir lygnan sjó um miðja deild.

Selfoss situr þá í öðru sæti eftir jafntefli við Kára. Selfyssingar komust í tveggja marka forystu á heimavelli en gestirnir frá Akranesi náðu að bjarga stigi, lokatölur urðu 2-2.

Selfoss er með 33 stig, þremur stigum fyrir ofan Kára í baráttunni um 2. sætið þegar fjórar umferðir eru eftir.

Víkingur Ólafsvík lagði á sama tíma Þrótt Vogum að velli þökk sé tvennu frá Naim El Hmaidi og er fimm stigum á eftir Selfossi. Vogamenn eru í fallbaráttu, aðeins þremur stigum fyrir ofan Hvíta riddarann og KFG sem deila neðsta sætinu eftir innbyrðisviðureign.

KFG gjörsamlega rúllaði yfir Mosfellinga og skóp fimm marka sigur til að senda skýr skilaboð í fallbaráttunni. KFG er aðeins þremur stigum frá öruggu sæti eftir sigurinn.

Fjölnir er svo gott sem úr leik í baráttunni um annað sætið eftir tap á heimavelli gegn KFA. Árni Steinn Sigursteinsson skoraði á fyrstu mínútu en gestirnir frá Austfjörðum svöruðu með tveimur mörkum og skópu 1-2 sigur. Þetta er dýrmætur sigur fyrir KFA sem er núna sjö stigum fyrir ofan fallsvæðið með fjórar umferðir eftir óspilaðar.

Að lokum gerðu Dalvík/Reynir og Magni jafntefli og eru sex stigum fyrir ofan fallsvæðið fyrir lokahnykkinn.

Kormákur/Hvöt 1 - 2 Haukar
0-1 Tómas Atli Björgvinsson ('10 )
0-2 Jón Gísli Stefánsson ('18 )
1-2 Guzman Díaz Scarone ('24 )
Rautt spjald: Manuel Ferriol Martínez, K/H ('96)

Selfoss 2 - 2 Kári
1-0 Frosti Brynjólfsson ('2 )
2-0 Bjarki Flóvent Ásgeirsson ('42 )
2-1 Árni Salvar Heimisson ('45 )
2-2 Tómas Týr Tómasson ('70 )

Víkingur Ó. 2 - 1 Þróttur V.
1-0 Naim Aaras EL Hmaidi ('30 )
2-0 Naim Aaras EL Hmaidi ('57 )
2-1 Eyþór Orri Ómarsson ('63 )
Rautt spjald: Kristófer Áki Hlinason, Víkingur ('82)

Hvíti riddarinn 0 - 5 KFG
0-1 Ólafur Viðar Sigurðsson ('27 )
0-2 Brynjar Gauti Guðjónsson ('43 )
0-3 Gísli Snær Weywadt Gíslason ('45 )
0-4 Ólafur Viðar Sigurðsson ('73 )
0-5 Djordje Biberdzic ('95 )

Fjölnir 1 - 2 KFA
1-0 Árni Steinn Sigursteinsson ('3 )
1-1 Patrekur Aron Grétarsson ('22 )
1-2 Marc Sirvent Espi ('32 )

Dalvík/Reynir 1 - 1 Magni
0-1 Tómas Örn Arnarson ('59 )
1-1 Gabriel Lukas Freitas Meira ('73 )
Rautt spjald: Elvar Máni Guðmundsson, D/R ('45+2)


2. deild: Haukar tveimur stigum frá Lengjudeildinni
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

2. deild: Haukar tveimur stigum frá Lengjudeildinni
Canon

Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

2. deild: Haukar tveimur stigum frá Lengjudeildinni
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Haukar18+2241
2Selfoss18+933
3Kári18+1830
4Víkingur Ó.18-428
5Fjölnir18+325
6Kormákur/Hvöt18+924
7KFA18+423
8Dalvík/Reynir18-322
9Magni18-1222
10Þróttur V.18-619
11Hvíti riddarinn18-1616
12KFG18-2416
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.